Fotbolti.net
18.02.22 - 22:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Óttar Magnús til Oakland Roots (Staðfest)

Óttar fagnar marki með Víkingi.

Óttar fagnar marki með Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Óttar Magnús Karlsson er búinn að fá félagaskipti til Oakland Roots í Bandaríkjunum. Hann kemur þangað á láni frá ítalska félaginu Venezia.
„Það er mjög spennandi að fá inn leikmann úr einni af bestu deildum Evrópu og hafa samband í gegnum eignarhald við félag eins og Venezia,“ sagði Jordan Ferrell, yfirmaður knattspyrnumála hjá Oakland. „Reynslan sem Óttar hefur úr evrópskum fótbolta og með landsliði Íslands verður kærkomin viðbót við leikmannahóp okkar árið 2022."

Oakland spilar í bandarísku USL deildinni sem er sú næst sterkasta í Bandaríkjunum á eftir MLS deildinni. Oakland er í Kaliforníu og var félagið stofnað árið 2018.

Óttar lék fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Siena í Serie C á Ítalíu en sneri aftur til Venezia í lok síðasta mánaðar. Hann er 24 ára gamall Víkingur sem hefur á sínum ferli spilað með unglingaliðum Ajax, varaliði Sparta Rotterdam, Molde, Trelleborg, Mjällby, Venezia og Siena. Tímabilið 2020 skoraði Óttar níu mörk í fjórtán leikjum með Víkingi. Þá á hann að baki níu A-landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.

Núgildandi samningur Óttars við Venezia gildir fram á sumarið 2023.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.