18.03.14 - 09:39
Magnús Már Einarsson
Villas-Boas tekinn við Zenit (Staðfest)

Villas-Boas ætti að fá vel borgað í Rússlandi.

Mynd: Getty Images

Andre Villas-Boas hefur verið ráðinn þjálfari Zenit St Pétursborg í Rússlandi.
Hinn 36 ára gamli Villas-Boas skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Hann mun stýra sínum fyrsta leik þegar Zenit mætir Borussia Dortmund í seinni leiknum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Villas-Boas tekur við Zenit af hinum ítalska Luciano Spalletti sem fékk að taka pokann sinn eftir einungis einn sigur í síðustu ellefu leikjum.
Villas-Boas var sjálfur rekinn frá Tottenham í desember eftir tæplega eitt og hálft ár í starfi en hann stýrði áður Chelsea og Porto.

Heimild: Sky