18.03.16 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Orri Sveinn í Huginn á láni (Staðfest)

Orri Sveinn Stefánsson (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar

Orri Sveinn Stefánsson (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar
Huginn frá Seyðisfirði hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í 1. deild í sumar en varnarmaðurinn Orri Sveinn Stefánsson er kominn til félagsins á láni frá Fylki.
Orri er uppalinn Fylkismaður en hann varð tvítugur í síðasta mánuði.
Orri er uppalinn Fylkismaður en hann varð tvítugur í síðasta mánuði.
Orri var einnig á láni hjá Huginn á síðasta tímabili þegar liðið sigraði 2. deildina.
Orri skoraði þrjú mörk í 21 leik í 2. deildinni með Huginn og var valinn efnilegasti leikmaður liðsins eftir tímabilið.
Félagaskipti Orra gengu í gegn í dag og hann gæti því leikið á ný með Huginn í Lengjubikarnum gegn Stjörnunni í Garðabæ á morgun.