Fotbolti.net
18.03.22 - 12:21
Brynjar Ingi Erluson

Hörður Sveins í Njarðvík (Staðfest)

Hörður Sveinsson spilar með Njarðvík í sumar

Hörður Sveinsson spilar með Njarðvík í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Sveinsson er genginn í raðir Njarðvíkur frá Reyni Sandgerði og mun spila með liðinu á komandi tímabili.
Hörður, sem verður 39 ára í næstu viku, spilaði lengst af á ferlinum með Keflavík en hann spilaði einnig tvö tímabil með Val frá 2011 til 2012.

Framherjinn knái hefur spilað síðustu fjögur tímabil spilað með Reyni Sandgerði og hjálpaði liðinu að komast upp um tvær deildir á þeim tíma.

Hörður skoraði 8 mörk í 2. deildinni á síðasta tímabili er Reynir hafnaði í 7. sæti deildarinnar.

Hann er nú mættur til Njarðvíkur og mun spila með þeim á komandi tímabili en liðið lenti í 6. sæti á síðasta tímabili.

Hörður á 401 leik í deild- og bikar á ferlinum og hefur skorað 162 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.