Fotbolti.net
18.03.22 - 17:20
Brynjar Ingi Erluson

Kórdrengir fá Sverri Pál á láni frá Val (Staðfest)

Sverrir Páll Hjaltested og Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja

Sverrir Páll Hjaltested og Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja

Canon

Mynd: Kórdrengir

Sverrir Páll Hjaltested, leikmaður Vals, mun spila með Kórdrengjum í Lengjudeildinni í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kórdrengjum.
Sverrir, sem er 21 árs gamall framherji, spilaði 17 leiki með Val í Pepsi Max-deildinni á síðasta tímabili og skoraði 1 mark. Þar að auki gerði hann þrjú mörk í Mjólkurbikarnum.

Hann er uppalinn í Víkingi en samdi við norska liðið Tromsö árið 2016 áður en hann snéri aftur heim tveimur árum síðar og samdi við Val.

Sverrir hefur einnig leikið með Völsungi en hann mun spila á komandi tímabili hjá Kórdrengjum á láni frá Val.

Kórdrengir höfnuðu í 4. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili og voru lengi vel í baráttu um að komast upp í deild þeirra bestu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.