Fotbolti.net
18.03.22 - 10:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þróttur fær fyrrum landsliðskonu frá Ástralíu (Staðfest)

Þróttur fær fyrrum landsliðskonu frá Ástralíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur

Kvennaboltinn
Gema Simon, fyrrverandi landsliðskona Ástrala, hefur skrifað undir samning um að leika með Þrótti í Bestu deildinni á komandi sumri.

Gema er fædd 1990, hún er reynslumikill leikmaður og hefur lengi verið í fremstu röð í heimalandi sínu. Hún hefur lengst af á sínum ferli leikið í efstu deild í Ástralíu, aðallega með Newcastle Jets en þaðan kemur hún til Þróttar.
Þá hefur hún einnig leikið með Avaldsnes í Noregi og víðar. Gema á að baki 11 landsleiki fyrir Ástralíu og var í leikmannahópnum á Heimsmeistaramóti kvenna í Frakklandi 2019. Þá hefur hún leikið með U20 ára liði Ástrala.

„Við erum mjög ánægðir með það Þróttarar, að geta laðað þennan leikmann til landsins enda er Gema sterkur varnarmaður með alþjóðlega reynslu. Við trúum því að hún eigi eftir að láta mikið að sér kveða á Íslandi í sumar,“ segir Kristján Kristjánsson formaður knd. Þróttar.

„Við viljum bæta okkur ár frá ári og teljum að Gema geti skipt máli þar, auk þess sem hún muni með reynslu sinni hafa mjög góð áhrif á ungan leikmannahóp, jafnt innan sem utan vallar.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.