Fotbolti.net
18.04.16 - 17:14
Elvar Geir Magnússon

Haukur Baldvinsson í Keflavík (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson og Haukur Baldvinsson.

Þorvaldur Örlygsson og Haukur Baldvinsson.

Canon

Mynd: Keflavík

Haukur Baldvinsson hefur gengið í raðir 1. deildarliðs Keflavíkur en hann skrifaði undir samning við félagið áðan.
Hinn 25 ára gamli Haukur er kant og miðjumaður en hann er uppalinn hjá Breiðabliki.

Haukur skoraði eitt mark í fjórtán leikjum með Víkingi í Pepsi-deildinni í fyrra.

Árin 2013 og 2014 spilaði Haukur með Fram en samtals hefur hann skorað fjórtán mörk í 130 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.

Keflavík lenti í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra en eftir tímabilið tók Þorvaldur Örlygsson við sem þjálfari liðsins.
Haukur Baldvinsson í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.