Fotbolti.net
18.04.17 - 08:16
Magnús Már Einarsson

Harry Redknapp tekinn við Birmingham (Staðfest)

Mættur aftur!

Mættur aftur!

Canon

Mynd: Getty Images

Harry Redknapp hefur verið ráðinn stjóri Birmingham í Championship deildinni.

Hinn sjötugi Harry tekur við af Gianfranco Zola sem hætti hjá Birmingham í gær.

Zola var ráðinn í desember en hann vann einungis tvo af 24 leikjum með Birmingham.

Harry er gífurlega reyndur stjóri en hann hefur ekki stýrt liði á Englandi síðan hann hætti hjá QPR árið 2015.

Á ferlinum hefur hann meðal annars stýrt West Ham, Tottenham, Portsmouth og Southampton.

Birmingham er í 20. sæti af 24 liðum í Championship deildinni en liðið er þremur stigum frá falli þegar þrjár umferðir eru eftir.

OFFICIAL: The Club is delighted to announce the appointment of Harry Redknapp as our new manager. #BCFC pic.twitter.com/kB1oirZz4s

— Birmingham City FC (@BCFC) April 18, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.