Fotbolti.net
18.04.17 - 15:05
Magnús Már Einarsson

Hlynur Örn í Fram (Staðfest)

Hlynur í leik með Grindavík í fyrra.

Hlynur í leik með Grindavík í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur fengið markvörðinn Hlyn Örn Hlöðversson til liðs við sig á láni frá Breiðabliki.

<i>„Knattspyrnudeild Fram býður Hlyn Örn velkomin í sterkan leikmannahóp liðsins fyrir átökin í Inkasso-deildinni í sumar,\"</I> segir á heimasíðu Fram.

Hinn 21 árs gamli Hlynur lék með Grindavík á láni fyrri hluta síðasta tímabils og árið 2015 var hann í láni hjá Tindastóli.
Hlynur á sex leiki að baki fyrir U19 ára landslið Íslands og fimm fyrir U17 ára landsliðið.

Stefano Layeni varði mark Fram í fyrra en hann fór frá félaginu eftir tímabilið.

Í vetur kom markvörðurinn Atli Gunnar Guðmundsson til Fram frá Hugin en hann og Hlynur berjast um markvarðarstöðuna hjá liðinu í sumar.

Komnir:
Atli Gunnar Guðmundsson frá Hugin
Benedikt Októ Bjarnason frá ÍBV
Guðmundur Magnússon frá Keflavík
Högni Madsen frá B36 í Færeyjum
Hlynur Örn Hlöðversson frá Breiðabliki á láni
Simon Smidt frá ÍBV

Farnir:
Arnar Sveinn Geirsson í Val
Bojan Stefán Ljubicic (Var á láni)
Gunnlaugur Hlynur Birgisson í Breiðablik (Var á láni)
Hafþór Mar Aðalgeirsson í Völsung
Hafþór Þrastarson í Selfoss
Ivan Parlov
Ósvald Jarl Traustason í Breiðablik (Var á láni)
Sam Tillen í FH (Var á láni)
Sigurður Hrannar Björnsson í Aftureldingu
Stefano Layeni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.