Leicester 1-0 Southampton
1-0 Kelechi Iheanacho ('55)
1-0 Kelechi Iheanacho ('55)
Leicester City og Southampton áttust við í undanúrslit enska bikarsins í dag en spilað var á Wembley í London.
Leicester var betra liðið í dag og átti hættulegri færi. Southampton gekk illa að ógna marki þeirra bláklæddu.
Staðan var markalaus í hálfleik á 55. mínútu kom Kelechi Iheanacho Leicester yfir. Iheanacho skoraði þá eftir góðan sprett frá Jamie Vardy. Iheanacho þurfti tvær tilraunir til að koma knettinum í netið.
Leicester stjórnaði leiknum áfram eftir markið og áttu þeir Jamie Vardy og James Maddison báðir fín færi en tókst ekki að skora.
Leiknum lauk því með 1-0 sigri Leicester sem mætir Chelsea í úrslitaleiknum þann 15. maí á Wembley.
Leicester City have played more FA Cup finals without lifting the trophy than any other side in the competition's history:
— William Hill (@WilliamHill) April 18, 2021
🥈 1949
🥈 1961
🥈 1963
🥈 1969
❓ 2021
After a 52-year wait, they have another chance to change it. #FACup pic.twitter.com/vcLSm3S8rN
Athugasemdir