Adam Ægir til Keflavíkur (Staðfest)

Adam Ægir í búningi Keflavíkur árið 2020

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Ægir í búningi Keflavíkur árið 2020

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson mun leika með Keflavík í Bestu deildinni í sumar en hann kemur til liðsins frá Víkingi á láni.
Adam þekkir vel til í Keflavík en hann gekk til liðs við Víking frá Keflavík á miðju sumri 2020.
Adam hefur fengið leikheimild og er klár í slaginn fyrir leik Keflavíkur gegn Breiðablik á Kópavogsvelli kl 19:45 á morgun.
„Við viljum bjóða Adam hjartanlega velkominn aftur heim í Bítlabæinn og hlökkum til að sjá hann á vellinum í sumar," segir í tilkynningu Keflavíkur.
Víkingur
Komnir
Ari Sigurpálsson frá Ítalíu
Arnór Borg Guðjohnsen frá Fylki
Birnir Snær Ingason frá HK
Davíð Örn Atlason frá Breiðabliki
Kyle McLagan frá Fram
Oliver Ekroth frá Svíþjóð
Axel Freyr Harðarson frá Kórdrengjum (var á láni)
Farnir
Atli Barkarson til Danmerkur
Halldór Jón Sigurður Þórðarson til ÍBV
Kári Árnason hættur
Kwame Quee til Sádí-Arabíu
Sölvi Geir Ottesen hættur
Keflavík
Komnir
Ásgeir Páll Magnússon frá Leikni F.
Dani Hatakka frá Finnlandi
Ernir Bjarnason frá Leikni R.
Patrik Johannesen frá Noregi
Rúnar Gissurarson frá Reyni S.
Sindri Snær Magnússon frá ÍA
Björn Aron Björnsson frá Víði (var á láni)
Edon Osmani frá Reyni (var á láni)
Jóhann Þór Arnarsson frá Víði (var á láni)
Farnir
Ástbjörn Þórðarson í FH
Christian Volesky til Bandaríkjanna
Davíð Snær Jóhannsson til Ítalíu
Oliver Kelaart í Þrótt Vogum
Helgi Bergmann Hermannsson í Víði (á láni)
