Fotbolti.net
18.04.22 - 16:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Derby fallið (Staðfest) - Hvað tekur við?

Championship: Derby fallið (Staðfest) - Hvað tekur við?
Canon

Mynd: Getty Images

Derby County er fallið úr Championship deildinni á Englandi. Liðið tapaði 1-0 gegn QPR í dag.

Eina mark leiksins skoraði Luke Amos en markið kom undir lok leiksins. Derby hefur verið í miklu veseni utan vallar en það hafa verið tekin 21 stig af liðinu á tímabilinu vegna fjárhagsvandræða félagsins.

Félagið hefur ekki enn fundið nýja eigendur en menn voru svartsýnir á að liðið gæti haldið starfsemi áfram ef liðinu tækist ekki að bjarga sæti sínu í Championship deildinni.

Huddersfield heldur í veika von um að komast beint upp en liðið lagði Middlesbrough 2-0. Huddersfield er fjórum stigum á eftir Bournemouth sem er í 2. sæti. Huddersfield á þrjá leiki eftir en Bournemouth fimm.

Baráttan um umspilssæti er rosaleg en þegar þrjár til fjórar umferðir eru eftir munar sex stigum á liðunum í 6.-13. sæti. Barnsley tapaði gegn Peterborough og er því á barmi þess að falla.

Úrslit úr öðrum leikjum dagsins og stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.

Barnsley 0 - 2 Peterborough United
0-1 Jack Marriott ('25 )
0-2 Frankie Kent ('75 )

Blackburn 0 - 1 Stoke City
0-1 Jacob Brown ('4 )

Blackpool 6 - 1 Birmingham
1-0 Jake Beesley ('3 )
2-0 CJ Hamilton ('14 )
3-0 Kenny Dougall ('40 )
4-0 Jake Beesley ('56 )
4-1 Ivan Sunjic ('63 )
5-1 Jerry Yates ('85 , víti)
6-1 Callum Connolly ('90 )

Cardiff City 0 - 1 Luton
0-1 Harry Cornick ('71 )

Coventry 0 - 3 Bournemouth
0-1 Jamal Lowe ('12 )
0-2 Dominic Solanke ('45 )
0-3 Dominic Solanke ('55 )

Middlesbrough 0 - 2 Huddersfield
0-1 Naby Sarr ('41 )
0-2 Jordan Rhodes ('60 )

Millwall 2 - 1 Hull City
1-0 Scott Malone ('51 )
2-0 Tom Bradshaw ('55 )
2-1 Tom Eaves ('86 )

QPR 1 - 0 Derby County
1-0 Luke Amos ('88 )
Rautt spjald: Tom Lawrence, Derby County ('90)

Reading 4 - 4 Swansea
1-0 Lucas Joao ('4 , víti)
1-1 Hannes Wolf ('7 )
1-2 Joel Piroe ('11 )
1-3 Joel Piroe ('45 , víti)
1-4 Michael Obafemi ('58 )
2-4 Tom Ince ('61 )
3-4 Lucas Joao ('71 )
4-4 Tom McIntyre ('90 )

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.