Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
   fös 18. apríl 2025 19:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Römer innsiglaði sigur KA í sínum fyrsta leik
Jakob Snær Árnason
Jakob Snær Árnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Draumabyrjun hjá Marcel Römer
Draumabyrjun hjá Marcel Römer
Mynd: KA
KA 4 - 0 KFA
1-0 Eggert Gunnþór Jónsson ('38 , sjálfsmark)
2-0 Jakob Snær Árnason ('41 )
3-0 Dagbjartur Búi Davíðsson ('68 )
4-0 Marcel Ibsen Romer ('80 )
Lestu um leikinn

Ríkjandi bikarmeistarar KA eru komnir áfram eftir öruggan sigur á KFA á Akureyri í kvöld. KA var með yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn en liðinu gekk illa að skapa sér alvöru marktækifæri.

KA náði forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Eggert Gunnþór Jónsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Aðeins þremur mínútum síðar bætti Jakob Snær Árnason við öðru marki. Mikael Breki Þórðarson átti sendingu inn á teiginn og Jakob setti boltann í netið.

Dagbjartur Búi Davíðsson bætti við þriðja markinu þegar hann skoraði með frábæru skoti.

Marcel Römer, sem gekk til liðs við KA frá Lyngby á dögunum, kom inn á á 65. mínútu í sínum fyrsta leik. Hann gerði sér lítið fyrir og innsiglaði sigur KA. Hann skoraði eftir sendingu inn á teiginn frá Jóan Edmundson.
Athugasemdir
banner
banner
banner