Fotbolti.net
18.05.16 - 17:49
Elvar Geir Magnússon

Kínverji búinn að kaupa Aston Villa (Staðfest)

Stuðningsmenn Villa gátu ekkert fagnað á liðnu tímabili.

Stuðningsmenn Villa gátu ekkert fagnað á liðnu tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Kínverski viðskiptamaðurinn Dr Tony Xia hefur samþykkt að kaupa Aston Villa fyrir 60 milljónir punda. Villa féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.

Ensku deildarsamtökin hafa staðfesta kaupin en Xia mun eignast 100% hlut.
Ameríski auðkýfingurinn Randy Lerner sem keypti Villa 2006 setti félagið á sölulista 2014.

Ekki er vitað hver mun verða knattspyrnustjóri Aston Villa á næsta tímabili en Nigel Pearson og Roberto di Matteo eru taldir líklegastir. Það verður tilkynnt á næstu dögum líklega.

Í tilkynningu frá Aston Villa segir að Dr Xia hafi mikla ástríðu fyrir íþróttinni og hafi leikið sem sóknarmaður þar til hann lauk háskólanámi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.