18.05.16 - 10:58
Elvar Geir Magnússon
Terry með nýjan samning við Chelsea (Staðfest)

Eitt ár í viðbót!

Mynd: Getty Images

Eitt ár í viðbót!

Mynd: Getty Images
John Terry fyrirliði Chelsea hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið. Þessi 35 ára miðvörður hefur spilað 703 leiki fyrir félagið síðan 1998.
Samningur hans var að renna út en nú hefur náðst samkomulag um að hann verði í leikmannahópnum undir stjórn Antonio Conte næsta vetur.

Terry segist í skýjunum með þessa niðurstöðu og að hann sé fullur tilhlökkunar.
Þá sleikir hann aðeins stuðningsmenn Chelsea: „Þið eruð þeir bestu í heimi!
Terry er gríðarlega mikilvægur karakter fyrir Chelsea. Liðið stóð alls ekki undir væntingum á liðnu tímabili, endaði í tíunda sæti eftir að hafa hampað Englandsmeistaratitlinum fyrir ári.