Fotbolti.net
18.05.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ásgeir Orri til reynslu hjá Venezia

Ásgeir Orri Magnússon.

Ásgeir Orri Magnússon.

Canon

Mynd: Aðsend

Ítalska félagið Venezia heldur áfram að fá til sín unga og efnilega Íslendinga á reynslu. Þrír Íslendingar leika með U19 ára (Primavera) liði félagsins og þá var Theódór Ingi Óskarsson á reynslu hjá félaginu á dögunum.

Í þetta skiptið er það markvörðurinn Ásgeir Orri Magnússon sem er staddur hjá Venezia og verður þar í vikutíma.
Ásgeir Orri er Keflvíkingur sem fæddur er árið 2004. Í Keflavík leikur hann með 2. flokki félagsins.

Þeir Íslendingar sem eru á mála hjá Venzia eru: Arnór Sigurðsson (á láni frá CSKA), Bjarki Steinn Bjarkason (á láni hjá Catanzaro), Óttar Magnús Karlsson (á láni hjá Oakland Roots), Hilmir Rafn Mikaelsson (Primavera á láni frá Fjölni), Jakob Franz Pálsson (Primavera) og Kristófer Jónsson (Primavera á láni frá Val).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.