Fotbolti.net
18.05.22 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Djordje Panic í Ægi (Staðfest)

Panic er mættur í Ægi

Panic er mættur í Ægi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir náði að styrkja sig rétt fyrir gluggalok því Djordje Panic er genginn í raðir félagsins frá þýska félaginu SV Vatanspor Aschaffenburg.

Djordje er 23 ára gamall kantmaður sem er uppalinn hjá Fjölni, Red Star og Graficar í Serbíu áður en hann tók eitt ár með 2. flokki KR. Í kjölfarið fór hann í Aftureldingu árið 2019 og því næst til Þýskalands þar sem hann lék með Bayern Alzenau.

Seinni hluta tímabilsins 2020 var hann skráður í Þrótt og fyrri hluta tímabilsins 2021 hjá Kórdrengjum en spilaði þó ekki leik. Svo fór hann aftur til Þýskalands og spilaði með SV Zeilsheim II áður en fór til Aschaffenburg.
Ægir er í 2. deild karla og er Djordje kominn með leikheimild. Hann gæti því spilað þegar Ægir mætir Reyni í Sandgerði á föstudag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.