Fotbolti.net
18.05.26 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Carragher ekki hissa á ummælum Salah: Hann er eigingjarn

Carragher ekki hissa á ummælum Salah: Hann er eigingjarn
Canon

Mynd: EPA

Fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher, sem er gallharður stuðningsmaður Liverpool, segist ekki vera hissa á ummælum Mohamed Salah þar sem hann skýtur föstum skotum á Arne Slot þjálfara.
Salah skaut á Slot - „Vil sjá Liverpool fara aftur í þungarokksboltann“
TENGT EFNI

Salah skaut á Slot - „Vil sjá Liverpool fara aftur í þungarokksboltann“



Steven Gerrard og Wayne Rooney hafa fordæmt ummælin og nú bætist Carragher við hópinn.

„Ég er ekki hissa á þessum ummælum. Ég hef verið að segja við alla að hann (Salah) mun koma með aðra bombu svolítið eins og (Cristiano) Ronaldo gerði þegar hann yfirgaf Manchester United. Ég hélt að hann myndi kannski bíða þar til eftir tímabilið, en nei," sagði Carragher.

„Fyrir tæpum tveimur árum kallaði ég hann eigingjarnan og ég held að það eigi aftur við núna. Það er rosalega mikilvæg vika framundan hjá Liverpool sem þarf að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni og þessi vika ætti að snúast um Liverpool FC, ekki Salah FC.

„Það er lífsnauðsynlegt fyrir félagið að komast í Meistaradeildina en ég er ekki hissa á þessum ummælum og þetta fer honum ekki vel."


Salah lét ummælin falla skömmu fyrir það sem á að vera lokaleikurinn hans á heimavelli eftir að hafa náð mögnuðum árangri með Liverpool. Liðið tekur á móti Brentford í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins á sunnudaginn.

Rooney segir að Slot ætti ekki að hafa Salah með í hóp fyrir lokaleik tímabilsins eftir þessi ummæli, en Carragher er ósammála.

„Ef Salah gefur Liverpool auknar sigurlíkur um helgina þá verður hann að spila. Ég hef gagnrýnt Salah fyrir að vera eigingjarn en Arne Slot má ekki vera það. Hann verður að hugsa um klúbbinn fyrst og fremst, hann verður að ná þessu meistaradeildarsæti.

„Staðan verður öðruvísi ef Liverpool þarf ekki að sigra í lokaumferðinni, þá getur Slot gert það sem hann vill með liðið. Ef þeir þurfa sigur þá verður hann að nota Salah."


Liverpool getur tryggt sér sæti í Meistaradeildinni annað kvöld ef Bournemouth tapar á heimavelli gegn titilbaráttuliði Manchester City.

„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“
TENGT EFNI

„Myndi ekki hleypa Salah nálægt leikvangnum“

Carragher ekki hissa á ummælum Salah: Hann er eigingjarn
Canon

Mynd: EPA

Carragher ekki hissa á ummælum Salah: Hann er eigingjarn
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.