18.06.16 - 16:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Gylfi kom Íslandi yfir úr vítaspyrnu!

Íslenska liðið fagnar hér markinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska liðið fagnar hér markinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er komið 1-0 yfir gegn Ungverjalandi í öðrum leik liðsins á EM, en búið er að flauta til hálfleiks.
Ungverjar voru búnir að vera sterkari í leiknum, en Ísland fékk þó besta færi leiksins þegar Jóhann Berg Guðmundsson komst einn á móti Kiraly í markinu. Hann lét hins vegar Kiraly verja frá sér.
Það var svo á 39. mínútu þegar Ísland fékk vítaspyrnu. Eftir horn missti Gabor Kiraly boltann og Íslendingar voru grimmir á boltann. Aron Einar var felldur og vítaspyrna var dæmd.
Gylfi Þór Sigurðsson fór á punktinn og var alltaf að fara að skora, engin spurning.
MAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARK!!!!!
Aldrei spurning hjá Gylfa. Sendir Kiraly í vitlaust horn.
VIÐ ERUM YFIR Í FYRSTA SKIPTI Á STÓRMÓTI!! (STAÐFEST)
Þetta sagði Jóhann Ingi Hafþórsson í beinni textalýsingu hjá Fótbolta.net sem má finna hér
Hér að neðan má sjá myndbandið af markinu.

GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON! 1-0 fyrir Íslandi! #EMÍsland #ISL #HUN https://t.co/OxotGBqTji
— Síminn (@siminn) June 18, 2016