18.06.20 - 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ómar Jó í markið hjá Kormáki/Hvöt (Staðfest)

Ómar tekur fram hanskana í stuttan tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Ómar Jóhannsson hefur ákveðið að semja við Kormák/Hvöt um að spila með liðinu í 4. deild karla um stutt skeið.
Ómar er 39 ára gamall og er hann fyrrum markvörður Keflavíkur og Njarðvíkur. Undanfarin ár hefur hann verið markvarðarþjálfari Keflavikur og mun hann halda því hlutverki áfram.
Í tilkynningu frá Keflavík segir að hann fari til Kormáks/Hvatar til að leysa skömm markvarðarvandræði liðsins.
Kormákur/Hvöt er í B-riðli 4. deildarinnar og mun á sunnudaginn hefja keppni með leik gegn KFR á útivelli.