18.06.20 - 09:04
Magnús Már Einarsson
Örvar Eggerts í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir hefur fengið framherjann Örvar Eggertsson í sínar raðir frá Víkingi R.
Hinn 21 árs gamli Örvar skoraði eitt mark í tólf leikjum með Víkingi í Pepsi Max-deildinni í fyrra en samtals hefur hann skorað tvö mörk í 36 leikjum í deildinni.
Fjölnismenn hafa verið í leit að liðsstyrk í fremstu víglínu í langan tíma en Albert Brynjar Ingason, markahæsti leikmaður liðsins í fyrra, fór til Kórdrengja í vetur.
Fjölnir gerði 1-1 jafntefli við Víking R. í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar á mánudaginn en liðið mætir Stjörnunni á heimavelli á sunnudaginn.

Draumaliðsdeild Eyjabita
Örvar er kominn í Fjölni í Draumaliðsdeild Eyjabita?. Kemst hann í þitt lið?

Örvar Eggertsson semur við Fjölni!
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) June 18, 2020
Við bjóðum Örvar hjartanlega velkominn í #FélagiðOkkar og hlökkum til að sjá hann með okkar mönnum á vellinum í Pepsi Max deildinni. pic.twitter.com/C1WOBPQfk4