Fotbolti.net
18.06.22 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson

QPR fær varnarmann frá Chelsea (Staðfest)

Jake Clarke-Salter er mættur til QPR

Jake Clarke-Salter er mættur til QPR

Canon

Mynd: QPR

Enska B-deildarfélagið QPR hefur gengið frá samningum við enska varnarmanninn Jake Clarke-Salter en hann kemur á frjálsri sölu frá Chelsea.
Clarke-Salter er 24 ára gamall og uppalinn hjá Chelsea en hann lék aðeins þrjá leiki fyrir aðalliðið á fjórtán árum sínum hjá félaginu.

Chelsea lánaði hann sex sinnum frá félaginu en nú síðast var hann á láni hjá Coventry City í B-deildinni.

Hann er nú genginn í raðir QPR og gerði fjögurra ára samning við félagið en hann kemur á frjálsri sölu frá Chelsea þar sem félagið ákvað að framlengja ekki samning hans.

Clarke-Salter á að baki 33 leiki fyrir öll yngri landslið Englands og hefur gert eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.