Fotbolti.net
18.06.26 - 14:09
Elvar Geir Magnússon

Mbappe gefur Giroud treyjuna sína eftir að hafa hrifsað metið af honum

Giroud og Mbappe.

Giroud og Mbappe.

Canon

Mynd: EPA

Eftir að hafa skorað tvö mörk gegn Senegal í fyrsta leik Frakklands á HM varð Kylian Mbappe markahæsti landsliðsmaður í sögu Frakka.

Mbappe hefur núna skorað 58 landsliðsmörk og er búinn að taka fram úr Olivier Giroud sem lagði landsliðsskóna á hilluna fyrir tveimur árum.

Giroud sendi Mbappe skilaboð eftir að hann tók metið af honum.
Mbappe bætti met og færist nær öðru stóru meti
TENGT EFNI

Mbappe bætti met og færist nær öðru stóru meti

„Til hamingju vinur, ég samgleðst þér. Ég átti metið í þrjú og hálft ár og það var frábært. Núna er það þitt og þú verður að bæta ofan á það, og vinur... ekki gleyma að geyma treyjuna handa mér!" skrifaði Giroud.

Mbappe hafði lofað Giroud að gefa honum treyjuna sem hann klæddist þegar hann sló metið, og mun hann standa við það.

Segir Mbappe misskildan
Giroud og Mbappe eru góðir félagar og segir Giroud að Mbappe sé að mörgu leyti misskilinn.

„Stundum finnst fólki hann vera hrokafullur, sem hann er ekki. Margir sem þekkja hann ekki persónulega dæma hann á rangan hátt. Hann hefur alltaf sýnt öðrum virðingu og skilur að þetta snýst allt um leiðsheildina," segir Giroud.

„Hann er ekki hrokafullur, þetta er bara sjálfstraust og metnaður. Hann sýnir það þegar hann talar. Þegar hann kom fyrst inn í franska landsliðið sem táningur þá vissi hann alltaf hvert hann ætlaði að ná."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
„Hann er ekki hrokafullur, þetta er bara sjálfstraust og metnaður."

„Hann er ekki hrokafullur, þetta er bara sjálfstraust og metnaður."

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.