Fotbolti.net
18.06.26 - 16:43
Elvar Geir Magnússon

Önnur konan sem dæmir á HM karla

Tori Penso hress og kát.

Tori Penso hress og kát.

Canon

Mynd: EPA

Hin bandaríska Tori Penso er að dæma leik Tékklands og Suður-Afríku í A-riðli HM en leikurinn er í gangi.

Þegar þessi frétt er skrifuð er að koma hálfleikur og Tékkar leiða 1-0 eftir mark Michal Sadilek sem kom eftir innkast sem splundraði vörn Afríkumanna.
Íslandsóvinurinn Frappart fyrsta konan sem dæmir á HM karla
TENGT EFNI

Íslandsóvinurinn Frappart fyrsta konan sem dæmir á HM karla

Penso er önnur konan til að vera aðaldómari í leik á heimsmeistaramóti í karlaflokki. Hún fetar í fótspor Stéphanie Frappart sem dæmdi leik Þýskalands og Kosta Ríka í riðlakeppni HM 2022 í Katar.

Allt dómaratríóið í Atlanta er skipað konum. Brooke Mayo og Kathryn Nesbitt sem einnig eru bandarískar eru aðstoðardómarar.

Penso dæmdi úrslitaleik HM kvenna 2023 þegar Spánn vann England 1-0. Hún byrjaði að dæma fjórtán ára en hún er í dag 39 ára og hefur starfað sem alþjóðlegur FIFA dómari síðan 2021.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.