Fotbolti.net
18.06.26 - 13:04
Elvar Geir Magnússon

Wahi ekki hleypt inn í Kanada

Wahi verður ekki með gegn Þýskalandi.

Wahi verður ekki með gegn Þýskalandi.

Canon

Mynd: EPA

Elye Wahi, leikmanni Fílabeinsstrandarinnar, var ekki hleypt inn í Kanada en þar mun Fílabeinsströndin leika gegn Þýskalandi í riðlakeppni HM á laugardag.

Eins og við fjölluðum um í gær er þessi framherji Nice til rannsóknar vegna gruns um veðmálasvindl.
Byrjunarliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar handtekinn vegna gruns um veðmálasvindl
TENGT EFNI

Byrjunarliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar handtekinn vegna gruns um veðmálasvindl

Wahi, sem er 23 ára gamall, var handtekinn tveimur vikum fyrir heimsmeistaramótið. Hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá Nice í Frakklandi, en er grunaður um að hafa viljandi fengið gult spjald í leik gegn Metz þann 17. maí síðastliðinn.

Wahi var í byrjunarliðinu í 1-0 sigri liðsins á Ekvador í fyrsta leik þjóðanna á HM en sá leikur fór fram í Bandaríkjunum.

Kanadískir landamæraverðir hleyptu helduyr ekki Thomas Partey, leikmanni Gana, inn í landið en yfir honum eru nauðgunarákærur.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.