Fotbolti.net
17.06.26 - 22:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Sú staða sem tekur við hjá henni eftir því sem aldurinn hrynur yfir hana"

Auglýsing
„Sú staða sem tekur við hjá henni eftir því sem aldurinn hrynur yfir hana"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigur á FH í framlengdum leik í Eyjum í dag. Fótbolti.net ræddi við Jón Ólaf Daníelsson, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.

„Við unnum fyrir öllu sem við fengum í dag. Fyrir það er ég þakklátur. Ég er gríðarlega sáttur með mínar stúlkur. Bæði hvernig við undurbjuggum okkur fyrir leikinn og hvernig þær skiluðu því sem er búið að vera vinna með inn á völlinn," sagði Jón Óli.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 2 FH
„Heilt yfir vorum við skipulagðar. En við erum að spila við frábært lið sem þú þarft að kljást við einn á móti einum. Það er ekki gaman að vera bakvörður á móti leikmönnum FH-inga. Þetta gekk hjá okkur í dag."

Olga Sevcova og markvörðurinn Guðný Geirsdóttir fengu hrós frá Tryggva Guðmundssyni sem ræddi við Jón Óla. Olga er vön að spila á kanntinum en spilaði mikið í bakverðinum í dag.

„Við vissum að við þyrftum að gera breytingar jafnvel í fyrri hálfleik. Svo þegar við þurftum að fara hrófla við liðinu fór Olga bæði í vængbakvörð og bakvörð. Það er sú staða sem tekur við hjá henni eftir því sem aldurinn hrynur yfir hana," sagði Jón Óli léttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.