18.07.13 - 21:44
Hafliði Breiðfjörð
Björgólfur Takefusa hættur í Val (Staðfest)

Björgólfur Takefusa er hættur hjá Val.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Björgólfur Takefusa er hættur hjá Val.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Björgólfur Takefusa er hættur í Val og má leita sér að nýju félagi í félagaskiptaglugganum sem er opinn út mánuðinn.
Þetta staðfesti Sigurður Kristinn Gunnarsson varaformaður knattspyrnudeildar félagsins við Fótbolta.net í kvöld.
Sigurður Kristinn sagði að félagið og Björgólfur hafi tekið sameiginlega ákvörðun um að rifta samningnum og hún hafi verið gert í sátt og samlyndi.
Það hefur stefnt í það undanfarnar vikur að Björgólfur færi frá félaginu og hann hefur ekki verið í leikmannahóp að undanförnu.
Björgólfur sem er 33 ára gamall kom til Vals í vetur frá Fylki og spilaði 8 leiki í deild og bikar fyrir félagið en skoraði ekki mark.
Hann hefur á ferli sínum spilað með Þrótti, Fylki, KR og Víkingi, samtals 249 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 111 mörk.