Fotbolti.net
18.07.13 - 14:20
Hafliði Breiðfjörð

Erlingur Jack Guðmundsson í Gróttu (Staðfest)

Erlingur Jack er orðinn leikmaður Gróttu.

Erlingur Jack er orðinn leikmaður Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn sterki Erlingur Jack Guðmundsson er genginn til liðs við Gróttu frá Þrótti og er kominn með leikheimild með sínu nýja félagi.
Hann getur því spilað með Gróttu gegn ÍR í 2. deildinni í kvöld.

Erlingur Jack sagði skilið við Þrótt eftir að Páll Einarsson hætti þjálfun liðsins fyrr í mánuðinum en nýr þjálfari, Zoran Miljkovic sagði Erlingi þá að hann myndi ekki nota hann á næstunni.

Erlingur Jack er 32 ára gamall og hefur gríðarmikla reynslu. Hann hefur spilað með Þrótti, Aftureldingu og ÍR, vel á annað hundrað leikja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.