Fotbolti.net
18.07.13 - 10:30
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Maicon genginn í raðir Roma (Staðfest)

Maicon.

Maicon.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski bakvörðurinn Maicon er farinn aftur til Ítalíu eftir eins árs dvöl í herbúðum Manchester City. Roma hefur staðfest komu hans til félagsins.
Þessi 31 árs gamli leikmaður lék einungis 9 úrvalsdeildarleiki með City í vetur eftir að hafa komið frá Inter fyrr ári síðan fyrir 3 milljónir punda.

Samkvæmt fregnum mun Maicon hafa komið til Roma á frjálsri sölu eftir að City ákvað að kaupa upp samning hans fyrir 2 milljónir punda og varð hann þar með laus allra mála frá félaginu.

Maicon þekkir vel til á Ítalíu, en eins og fyrr segir lék hann með Inter. Þar lék hann í sex ár og var talinn einn besti bakvörður heims á þeim tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.