18.07.14 - 16:22
Arnar Daði Arnarsson
Alejandro og Joey Spivack í Víking Ó. (Staðfest)
Danny Herzig farinn

Danny Herzig (til hægri) er farinn frá Ólafsvíkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík hefur fengið miðjumanninn Joey Spivack til liðs við sig sem og varnarmanninn Alejandro Vivancos Guinart.
Spivack er 24 ára gamall en hann hefur undanfarið ár leikið í heimalandi sínu, Bandaríkjunum. Þar áður lék hann í tvö ár með Kemi Kings í finnsku C-deildinni.
Spivack hefur einnig leikið í Belgíu og Englandi á ferli sínum en hann var í akademíu New York Red Bulls á sínum tíma.
Fyrr í mánuðinum var Spivack á reynslu hjá ÍBV en félagið ákvað að semja ekki við hann.
Alejandro er vinstri bakvörður en hann er 31 árs gamall Spánverji. Alejandro og Joey eru báðir komnir með leikheimild með Ólafsvíkingum og verða með liðinu gegn KA í 1. deildinni á morgun.
Þýski varnarmaðurinn Danny Herzig er hins vegar farinn frá Ólafsvíkingum en hann spilaði þrjá leiki í fyrstu deildinni í sumar.