Fotbolti.net
18.07.14 - 22:45
Elvar Geir Magnússon

Brown Ideye til West Brom (Staðfest)

Brown Ideye í landsleik með Nígeríu.

Brown Ideye í landsleik með Nígeríu.

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur fest kaup á nígeríska sóknarmanninum Brown Ideye en kaupverð var ekki gefið upp. Talið er þó að hann sé dýrasti leikmaður í sögu félagsins og hafi kostað um 10 milljónir punda.

Ideye kemur frá Dynamo Kiev og er fimmti leikmaðurinn sem WBA fær til sín í sumar.
Knattspyrnustjórinn Alan Irvine segist hæstánægður og fullur tilhlökkunar fyrir því að vinna með Ideye.

„Brown er hágæða sóknarmaður. Hann er sterkur, fljótur og kraftmikill auk þess sem hann er með landsliðs- og Meistaradeildarreynslu,\" segir Irvine en Ideye á að baki 24 landsleiki og fimm mörk fyrir Nígeríu.

Sebastien Pocognoli, Craig Gardner, Joleon Lescott og Chris Baird hafa allir gengið í raðir West Brom í sumar.

West Brom ætlar að gera betur á komandi tímabili en á því síðasta þar sem liðið hafnaði í 17. sæti, rétt fyrir ofan fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.