18.07.14 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Tonny Mawejje í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tonny Mawejje hefur fengið leikheimild með Val og verður löglegur með liðinu gegn KR í Pepsi-deildinni á morgun.
Tonny kemur frá Haugesund í Noregi en smá óvissa var um það hvort hann myndi fá atvinnuleyfi á Íslandi.
Félagaskiptin eru klár núna og Tonny gæti spilað sinn fyrsta leik á morgun líkt og Daði Bergsson og Billy Berntsson sem fengu leikheimild með Valsmönnum í vikunni.

Tonny, sem er 27 ára, fór frá ÍBV til Haugesund í Noregi eftir síðasta tímabil eftir að hafa leikið undanfarin fimm tímabil með Eyjamönnum.
Tonny kom fyrst til ÍBV árið 2009 en hann skoraði 10 mörk í 106 leikjum með félaginu. Þá hefur Tonny leikið 48 landsleiki með Úganda á ferlinum.