Fotbolti.net
18.07.16 - 11:59
Elvar Geir Magnússon

Reynir segir upp hjá HK - Jói Kalli tekur við (Staðfest)

Reynir Leósson.

Reynir Leósson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfarabreytingar hafa orðið hjá HK sem leikur í Inkasso-deildinni en Reynir Leósson er hættur og Jóhannes Karl Guðjónsson tekur við. Jóhannes, sem er fyrrum landsliðsmaður Íslands, er ráðinn út sumarið 2018.

Reynir tók við þjálfun HK fyrir tímabilið en liðið situr í tíunda sæti Inkasso-deildarinnar, 1. deildar, þegar keppni er hálfnuð.
Jóhannes hefur verið spilandi aðstoðarþjálfari HK í sumar.

Af heimasíðu HK:
Reynir Leósson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks HK að eigin ósk. Reynir þakkar stjórn, starfsfólki og þá sérstaklega leikmönnum fyrir samstarfið og óskar þeim góðs gengis það sem eftir er sumars.

Stjórn knattspyrnudeildar HK þakkar Reyni gott samstarf og óskar honum velfarnaðar.

Jóhannes Karl Guðjónsson tekur við sem þjálfari liðsins en hann og Reynir Leósson hafa unnið saman að þjálfun liðsins. Stjórn HK er þess fullviss að það uppbyggingarstarf starf sem unnið hefur verið haldi áfram. Jóhannes er ráðinn til tveggja og hálfs árs, eða út keppnistímabilið 2018.
Jóhannes Karl í leik með HK-ingum.

Jóhannes Karl í leik með HK-ingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.