Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. júlí 2019 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Raiola hylltur af stuðningsmönnum Juventus
Það er alltaf nóg að gera hjá Mino Raiola
Það er alltaf nóg að gera hjá Mino Raiola
Mynd: Getty Images
Mino Raiola, einn öflugasti umboðsmaður heims, var hylltur af stuðningsmönnum ítalska félagsins Juventus í dag eftir að Matthijs de Ligt var kynntur.

Raiola er einn umdeildasti umboðsmaður heims en hann er með marga af bestu leikmönnum heims á sínum snærum og virðist ekki alltaf fara eftir bókinni.

Juventus gekk í dag frá kaupum á hollenska varnarmanninum Matthijs de Ligt en Raiola er umboðsmaður hans.

Raiola var dæmdur í bann í síðasta mánuði og mátti hann ekki koma félagaskiptum fram að 9. ágúst en alþjóðaknattspyrnusamband FIFA gaf frest á því til að leyfa Raiola að útskýra mál sitt frekar.

Þegar Raiola var að yfirgefa Allianz-leikvanginn í Tórínó þá sungu stuðningsmenn Juventus til hans. Hann er greinilega í miklum metum eftir þessi viðskipti en hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.

Raiola er með fjóra aðra leikmenn Juventus en það eru þeir Moise Kean, Luca Pellegrini, Wesley og Blaise Matuidi.



Athugasemdir
banner
banner
banner