Fotbolti.net
18.07.20 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jorge Jesus tekur við Benfica (Staðfest)

Jorge Jesus tekur við Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Benfica staðfesti í gærkvöldi að Jorge Jesus mun taka við félaginu. Þjálfarinn er búinn að skrifa undir þriggja ára samning og segja portúgalskir fjölmiðlar hann þéna þrjár milljónir evra á tímabili auk bónusgreiðslna.
Jesus er talinn til bestu þjálfara heims og gerði frábæra hluti hjá Benfica, Sporting og Al-Hilal áður en hann skrifaði undir hjá Flamengo í Brasilíu. Hann kom Flamengo í úrslitaleik HM félagsliða og skrifaði undir nýjan eins árs samning við félagið í byrjun júní.

Hann er 65 ára gamall og hefur þrisvar sinnum verið valinn besti þjálfari portúgölsku deildarinnar auk þess að vera í sjöunda sæti yfir bestu þjálfara heims samkvæmt lista IFFHS.

Flamengo staðfesti í gær að Jesus væri að yfirgefa félagið og skömmu síðar birti Benfica tístið „Velkominn JJ."

Þetta tíst fór ekki vel í stuðningsmenn Flamengo sem tjáðu sig í gríð og erg undir tilkynningunni, sem varð til þess að henni var eytt út.

Jesus tekur við stjórnartaumunum af Bruno Lage sem sagði starfi sínu lausu í síðasta mánuði eftir hörmulegt gengi í kjölfar Covid hlésins.

Jesus stýrði Benfica í sex ár frá 2009 til 2015 og vann portúgölsku deildina þrisvar á þeim tíma. Hjá Flamengo vann hann brasilísku deildina, suður-amerísku Meistaradeildina og Rio de Janeiro deildina á einu ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.