Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir fóru í skemmtilegan leik sem UEFA birti myndband af á Twitter síðu sinni.
Karólína og Alexandra eru góða vinkonur og þær áttu að svara skrautlegum spurningum um hvor aðra. Það sama gildi um Glódísi og Berglindi.
Þær voru meðal annars spurðar hvaða hæfileika þær væru til í að hafa frá hinni. Allar svöruðu eitthvað fótboltatengt en Berglind sagði kökubaksturinn hennar Glódísar.
„Ég hef heyrt að hún gerir geggjaða köku, mig langar svo mikið að smakka hana. Ég hef ekki hugmynd um hvernig á að baka köku," sagði Berglind.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
🇮🇸 TEAM-MATES 🤗
— UEFA Women's EURO 2022 (@WEURO2022) July 18, 2022
🌟 Alexandra Jóhannsdóttir ➕
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 🌟
🌟 Berglind Thorvaldsdóttir
➕ Glódís Viggósdóttir 🌟#WEURO2022 | #ISL pic.twitter.com/xEh9V9jzRX
Athugasemdir