Fotbolti.net
18.07.26 - 11:53
Brynjar Ingi Erluson

Spila ekki á heimavelli í Meistaradeildinni - „Allt út af einhverjum hundi“

Spila ekki á heimavelli í Meistaradeildinni - „Allt út af einhverjum hundi“
Canon

Mynd: EPA

Litháensku meistararnir Kauno Zalgiris geta ekki leikið heimaleik sinn gegn KÍ/Klaksvík í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem tónleikar fara fram á heimavelli félagsins sama kvöld.
Kauno tryggði sér sæti í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar eftir sigur á Drita, en félagið virðist ekki hafa gert ráð fyrir þeim árangri þegar heimavöllurinn var leigður út.

Tónleikar fara þar fram sama dag og Kauno á að spila heimaleik sinn gegn KÍ frá Klaksvík.

Kauno þarf því að færa leikinn til Jonava, sem er í um 30 kílómetra fjarlægð. Leikvangurinn þar tekur aðeins um 2.500 áhorfendur í sæti.

„Við getum ekki spilað á heimavelli okkar af því að einhver hundur, eða eitthvað svoleiðis, er að halda tónleika þar. Ég ætla ekki að segja meira því það er betra en að láta eitthvað annað út úr mér. Þetta er bara eins og þetta er,“ sagði Zeljko Sopic, þjálfari Kaunas.

Hundurinn sem Sopic vísaði til er þó ekki raunverulegur hundur heldur bandaríski tónlistarmaðurinn Pitbull.

Mantas Kalnietis, forseti Kauno, viðurkennir að ákvörðunin um að bóka tónleikana á þessum degi hafi komið félaginu í vandræði.

„Tónleikar á leikvanginum skapa gríðarlegar tekjur og eru mikil skemmtun fyrir borgarbúa. Þetta styrkir félagið í heild, gerir okkur kleift að byggja upp betra lið og eykur möguleika okkar á að komast í deildarkeppnina.“

„Þetta verða einu tónleikar sumarsins og því munum við ekki lenda aftur í þessari stöðu,“ sagði hann í samtali við Guardian.

Kauno reyndi að skipta á heimaleikjum við KÍ, en það reyndist ekki mögulegt. Ólafsvökunni er fagnað í Færeyjum 28. og 29. júlí og þá á HB einnig heimaleik gegn Motherwell, sem hefði skapað vandamál vegna öryggiskrafna UEFA.
Pitbull verður með tónleika á leikvanginum

Pitbull verður með tónleika á leikvanginum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.