Xavi ætlar ekki taka við félagsliði - „Ég á fjölskyldu“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Xavi hefur útilokað það að taka við félagsliði næst, en hann segist mjög spenntur fyrir því að taka við landsliði.
Xavi, sem var einn besti miðjumaður heims á fótboltaferli sínum, hefur þjálfað Al Sadd og Barcelona á þjálfaraferlinum.
Hann stýrði Al Sadd frá 2019 til 2021 áður en hann sneri aftur heim til Barcelona þar sem hann var í þrjú ár áður en hann var látinn taka poka sinn.
Það kemur ekki til greina að taka við öðru félagsliði, að minnsta kosti ekki í bili, en hann er spenntur fyrir því að taka við landsliði.
„Næsta skref mitt gæti verið landsliðsþjálfarastarf. Það myndi henta mér og það er það sem ég vil gera. Ég á fjölskyldu og félag myndi ekki gefa mér jafn mikinn frítíma með fjölskyldunni. Ég á ung börn.“
„Ég er til í að þjálfa á HM, EM, Afríkumótinu og í Asíubikarnum,“ sagði Xavi.