Fotbolti.net
17.07.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guardiola var með samkomulag við enska sambandið

Guardiola var með samkomulag við enska sambandið
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola, fyrrum stjóri Manchester City, var með munnlegt samkomulag við enska fótboltasambandið um að taka við liðinu í kjölfar EM 2024. The Athletic greinir frá.

Ekkert varð úr því, sá spænski endursamdi við City og stýrði liðinu þar til í vor. Hann er núna á starfs.

Thomas Tuchel tók við af Gareth Southgate og kom liðinu í undanúrslit HM. Enskir eru ósáttir með upplegg Þjóðverjans gegn Argentínu í undanúrslitaleiknum á miðvikudag og í dag birtast fréttir tengdar Tuchel og samningi hans. Enska liðið féll djúpt niður á völlinn og bauð Argentínu, sem var í leit að jöfnunarmarki, upp á að herja á sig trekk í trekk.
Sagt er að enska sambandið hefði verið með uppsagnarákvæði í samningi Tuchel ef enska liðið hefði ekki komist lengra en í 16-liða úrslit. Þar sem liðið fór lengra en það þá er Tuchel með tryggðan samning fram yfir EM 2028.

England mætir Frakklandi á laugardagskvöld í leiknum um þriðja sætið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.