Fotbolti.net
18.08.13 - 19:42
Jóhann Óli Eiðsson

Pablo Osvaldo til Southampton (Staðfest)

Pablo Osvaldo til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton styrkti framlínu sína verulega í dag er liðið fékk Pablo Osvaldo til liðs við sig frá Roma fyrir metfé.
Ítalinn kostaði rúmar fimmtán milljónir punda en kaupverðið er sagt geta farið upp í átján milljónir standi hann sig vel hjá nýja liðinu. Þetta þýðir að Osvaldo er dýrasti leikmaður í sögu Southampton en fyrir mánuði hlaut Victor Wanyama þann titil er hann kom til liðsins fyrir 12,5 milljón punda frá Celtic.

Samningur Osvaldo er til fjögurra ára. Hjá Southampton hittir hann fyrir knattspyrnustjórann Mauricio Pochettinio en hann lék undir hans stjórn er hann var á mála hjá Espanyol. Osvaldo verður formlega kynntur á morgun og getur leikið sinn fyrsta leik um næstu helgi er lið hans mætir Sunderland.

Osvaldo hefur leikið níu landsleiki fyrir Ítalíu og skorað þrjú mörk en hann er fæddur Argentínumaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.