18.08.14 - 13:04
Magnús Már Einarsson
Chelsea lánar Josh McEachran í fimmta skipti (Staðfest)

Josh McEachran.

Mynd: Getty Images

Josh McEachran.

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur lánað miðjumanninn Josh McEachran til Vitesse Arnhem í Hollandi.
Þessi 21 árs gamli leikmaður var talinn einn af efnilegustu leikmönnum Englands fyrir nokkrum árum en hann hefur ekki náð að uppfylla væntingar hingað til.
McEachran hefur áður verið í láni hjá Swansea, Middlesbrough, Watford og Wigan en hann mun nú leika í Hollandi í vetur.

McEachran er þriðji leikmaðurinn sem Vitesse fær á láni frá Chelsea í sumar en Wallace og Bertrand Traore hafa farið sömu leið.
Vitesse var einnig með marga leikmenn á láni frá Chelsea á síðasta tímabili þegar liðið blandaði sér í toppbaráttuna í Hollandi.