18.08.20 - 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Faðir David Silva skilur ekki reiði Lazio

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mikið hefur verið rætt um félagaskipti David Silva til Real Sociedad þar sem hann virtist vera að ganga í raðir Lazio áður en hann skipti um skoðun og ákvað að halda heim til Spánar.
Igli Tare, yfirmaður knattspyrnumála hjá Lazio, sagðist ekki bera neina virðingu fyrir David Silva sem manni eftir samskipti þeirra. Tare hélt að hann hefði komist að samkomulagi við Silva, sem lét hann svo ekki vita að hann væri hættur við.
Fernando Jimenez, faðir David Silva, er hissa á reiðinni sem ríkir innan herbúða Lazio. Hann segir ekkert hafa verið frágengið í viðræðunum.
„Við vorum í viðræðum við Lazio, rétt eins og við vorum í viðræðum við Sociedad og önnur félög. Það var ekkert frágengið í samnignsmálum og er David mjög hissa á þessum viðbrögðum félagsins," sagði Jimenez við Radio Marca.
„Fólk getur sagt það sem það vill en Lazio ræddi bara við umboðsmanninn. Það voru aldrei bein samskipti við David þannig ég skil ekki þessa reiði."
Sjá einnig:
Íþróttastjóri Lazio reiður: Ber ekki virðingu fyrir David Silva
Bálreiðir út í David Silva - Hætti skyndilega að svara í símann
David Silva til Real Sociedad (Staðfest)
Stytta af David Silva reist fyrir utan heimavöll Man City