Fotbolti.net
18.08.20 - 14:06
Magnús Már Einarsson

Guðrún Karítas í Fylki (Staðfest)

Guðrún Karítas í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir

Kvennaboltinn
Guðrún Karítas Sigurðardóttir hefur gengið til liðs við Fylki en hún kemur til félagsins frá Val.

Guðrún Karítas er 24 ára gömul en hún gerði samning við Fylki út tímabilið 2022. Fyrri hluta tímabils var hún á láni hjá ÍA í Lengjudeildinni
Guðrún Karítas hefur leikið alls 133 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 44 mörk, en á ferli sínum hefur hún spilað með ÍA, Stjörnunni, KR og Val.

Þá á hún að baki 16 leiki og 6 mörk með yngri landsliðum Íslands.

„Um leið og við bjóðum Guðrúnu Karítas hjartanlega velkomna til félagsins þá þökkum við Val fyrir góð samskipti og vinnubrögð í kringum félagaskipti leikmannsins," segir á Facebook síðu Fylkis.

Draumaliðsdeild 50skills
Guðrún Karítas er í Draumaliðsdeild 50skills. Kemst hún í þitt lið?
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.