18.08.20 - 12:09
Magnús Már Einarsson
Joe Hart til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur gert tveggja ára samning við markvörðinn reynda Joe Hart.
Hart var án félags en samningur hans hjá Burnley rann út á dögunum.
Ferill Hart hefur verið á niðurleið undanfarin ár en hann missti sæti sitt hjá Manchester City þegar Pep Guardiola tók við liðinu sumarið 2016.
Síðan þá hefur hann farið til Torino, West Ham og Burnley.
Hinn 33 ára gamli Hart mun nú berjast við Hugo Lloris um markvarðarstöðuna hjá Tottenham.

Welcome to Spurs, Joe Hart! 🙌#THFC ⚪️ #COYS pic.twitter.com/GAFCevjvg6
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 18, 2020