18.08.20 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Knut Erik aftur í Hött/Huginn (Staðfest)

Úr leik hjá Hetti/Huginn í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Höttur/Huginn hefur fengið norska framherjann Knut Erik Myklebust í sínar raðir á ný.
Knut Erik spilaði síðari hlutann á síðasta tímabili með Hetti/Huginn og skoraði þá þrjú mörk í tíu leikjum.

Höttur/Huginn er einnig að missa menn en framherjinn Steinar Aron Magnússon er farinn til Bandaríkjanna í skóla og Gísli Björn Helgason fer út eftir helgi.
Einnig hefur Ramiro de Lillo snúið til síns heima af persónulegum ástæðum.
Höttur/Huginn er í tíunda sæti í 3. deildinni með átta stig, jafnmörg stig og Álftanes og Elliði sem eru í fallsætunum.
Næsti leikur Hattar/Hugins er gegn KV á útivelli á laugardaginn.