Fotbolti.net
18.08.20 - 09:16
Brynjar Ingi Erluson

Viðar Örn farinn frá Yeni Malatyaspor (Staðfest)

Viðar Örn Kjartansson er laus allra mála og getur fundið sér nýtt félag

Viðar Örn Kjartansson er laus allra mála og getur fundið sér nýtt félag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenski landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson verður ekki áfram hjá tyrkneska félaginu Yeni Malatyaspor en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Viðars, í samtali við mbl.is í dag.
Þessi 30 ára gamli framherji var lánaður frá Rostov til Yeni í janúar en hann lék 15 leiki í tyrknesku úrvalsdeildinni og skoraði tvö mörk ásamt því að leggja upp eitt.

Yeni nýtti sér forkaupsréttinn á Viðari í sumar en félagið hefur verið að glíma við fjárhagsvandræði eftir að það féll niður í B-deildina og náði þvi Viðar samkomulagi við Yeni um að hann gæti farið fra liðinu.

Hann er því laus allra mála og getur fundið sér nýtt lið en Ólafur staðfestir þetta í viðtali við mbl.is.

„Þessi mál voru leyst í góðu og að frum­kvæði Viðars. Ljóst var að vegna kór­ónu­veirunn­ar hefði fé­lagið ekki getað staðið við samn­ing­inn, þar sem það er í mikl­um erfiðleik­um. Viðar er nú laus allra mála og get­ur fundið sér nýtt fé­lag," sagði Ólafur við mbl.is.

Viðar Örn hefur leikið með félögum á borð við Malmö, Hammarby, Rubin, Jiangsu Suning og Vålerenga í atvinnumennsku en auk þess lék hann með Fylki, ÍBV og Selfossi hér á Íslandi. Hann hefur þá spilað 26 A-landsleiki og skorað 3 mörk.

Heimild: Mbl.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.