18.08.21 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Chelsea framlengir við Batshuayi og lánar hann til Besiktas (Staðfest)

Michy Batshuayi.

Mynd: Getty Images

Michy Batshuayi.

Mynd: Getty Images
Belgíski sóknarmaðurinn Michy Batshuayi skrifaði í dag undir nýjan samning við Chelsea og er nú búndinn félaginu til 2023.
Í kjölfarið var hann svo lánaður til tyrkneska félagsins Besiktas út yfirstandandi tímabil. Hann hefur staðist læknisskoðun og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Besiktas á laugardag.
Í kjölfarið var hann svo lánaður til tyrkneska félagsins Besiktas út yfirstandandi tímabil. Hann hefur staðist læknisskoðun og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Besiktas á laugardag.
Batshuayi hefur skorað 25 mörk í 77 leikjum fyrir Chelsea.
Frægasta markið kom í maí 2017 þegar hann skoraði gegn West Bromwich Albion og innsiglaði fimmta enska meistaratitil Chelsea.
Hann hefur verið lánaður til Borussia Dortmund, Valencia og í tvígang til Crystal Palace. Hann skoraði tvö mörk í 18 leikjum fyrir Palace á síðasta tímabili.

Very very happy to join @besiktas 🦅
— Michy Batshuayi (@mbatshuayi) August 18, 2021
An incredible opportunity for me and I'm already looking to play. Thank you to all the fans for the crazy welcome at Istanbul 🖤 See you at the stadium very soon 🔥🔥🔥 #batsman pic.twitter.com/AOnz3DDDNH