18.08.21 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kenedy framlengir við Chelsea og fer til Flamengo (Staðfest)
Emerson Palmieri á leið til Lyon

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíska félagið Flamengo var að tryggja sér Kenedy á lánssamningi með 10 milljón evra kaupmöguleika.
Á sama tíma framlengdi Chelsea samning Kenedy um eitt ár til að missa ekki verðgildi.
Kenedy er flinkur kantmaður sem hefur aðeins spilað 27 leiki fyrir Chelsea. Hann hefur verið mikið lánaður út og á leiki að baki fyrir Watford, Newcastle, Getafe og Granada.
Flamengo er að styrkja hópinn sinn rækilega þar sem Andreas Pereira er einnig á leið til félagsins á lánssamningi frá Manchester United.
Chelsea er einnig að losa sig við ítalska bakvörðinn Emerson Palmieri. Félagið er að framlengja samning hans um eitt ár og mun hann leika í franska boltanum að láni hjá Lyon út tímabilið.

Kenedy extends his contract and heads out on loan.
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 18, 2021
Wishing him all the best for the season. 👊💙