18.08.21 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Llorente skrifar undir sex ára samning við Atletico (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn fjölhæfi Marcos Llorente er búinn að skrifa undir nýjan sex ára samning við Spánarmeistara Atletico Madrid.
Llorente er afar öflugur miðjumaður sem leysti stöðu hægri bakvarðar með spænska landsliðinu á EM í sumar.
Hinn 26 ára gamli Llorente ólst upp hjá Real Madrid en fékk lítinn spiltíma og skipti að lokum til erkifjendanna í Atletico. Þar er hann búinn að festa sig í sessi sem algjör lykilmaður og skoraði 12 mörk í 37 deildarleikjum á síðustu leiktíð.
Llorente er núna samningsbundinn Atletico til 2027. Áhugamenn um enska knattspyrnu ættu að kannast við hann eftir að hann skoraði tvennu á Anfield og sló Liverpool úr Meistaradeildinni í mars í fyrra.

Marcos Llorente signs contract extension until 2027 🔥 pic.twitter.com/UWlvqmQcaA
— Atlético de Madrid (@atletienglish) August 18, 2021