18.08.21 - 16:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Locatelli til Juventus (Staðfest) - TikTok stjarna kynnti hann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manuel Locatelli er genginn í raðir Juventus á láni frá Sassuolo. Ef marka má heimildir félagsskiptasérfræðingsins Fabrizio Romano verður Juventus svo að kaupa miðjumanninn á næsta tímabili.
Þessi 23 ára leikmaður var hluti af ítalska landsliðinu sem vann EM alls staðar í síðasta mánuði, hann skoraði tvö mörk í fimm leikjum og kom inn af bekknum seint í úrslitaleiknum.
Locatelli mun fara á lán til Juventus í eitt ár og félagið kaupir hann svo næsta sumar á 30 milljónir punda. Hann var í sumar orðaður við Arsenal og Liverpool.
Myndband fylgir með tilkynningu Juventus og má sjá það hér að neðan. Þar kemur TikTok stjarnan Khaby Lame við sögu en hann er mjög vinsæll á þeim miðli.

𝘈𝘯𝘯𝘶𝘯𝘤𝘪𝘢𝘵𝘦 𝘓𝘰𝘤𝘢𝘵𝘦𝘭𝘭𝘪? ➡️ 🤲
— JuventusFC (@juventusfc) August 18, 2021
✍️ https://t.co/D2sD4Rq7IK
#LocatelliAnnounced pic.twitter.com/1md0nmVwxl